Útskriftarsýning Ljósmyndaskólans 2023

Opnun: 15. desember 2023
Staðsetning : Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Sýning á útskriftarverkum nemenda Ljósmyndaskólans var haldin í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, – Grófarsal. Stóð sýningin frá 15. desember 2023 til 14. janúar 2024.

Sýning á útskriftarverkum nemenda Ljósmyndaskólans var haldin í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, – Grófarsal. Stóð sýningin frá 15. desember 2023 til 14. janúar 2024. 

Uppsetning á sýningu á útskriftarverkum nemenda markar lok náms þeirra við Ljósmyndaskólans en þau luku þar með 5 anna námi og útskifuðust með diplómu í skapandi ljósmyndun.

Fjölbreytni í útsriftarverkum nemenda var mikil og spönnuðu viðfangsefni og aðferðir nemenda vítt svið. Þar tókust þau á við ólík málefni út frá ólíkum forsendum, mismunandi nálgun, listrænni sýn og fagurfræði.  Framsetning var á ýmsu formi en á sýningunni mátti sjá bókverk, videóverk, skúlptúra, klippiverk, innsetningar í bland við prent sem hengd voru á vegg.

Verkin á sýningunni endurspegluðu gróskuna í samtímasljósmyndun og fjölbreytta möguleika sem í ljósmyndamiðlinum felast.

Útskriftarnemendur:

Ásta Guðrún Óskarsdóttir, Grace Claiborn Barbörudóttir, Harpa Thors, Heiðrún Fivelstad, Helgi Vignir Bragason og Natasha Harris.

Sýningarstjóri: Katrín Elvarsdóttir

Myndir af sýningu tók Marinó Flóvent

Myndir frá sýningu

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur
Forvarnaráætlun
Alþjóðstefna
Áfallaáætlun