Uppskeruhátíð Ljósmyndaskólans 2025 var haldin dagana 17. – 18. maí að Hólmaslóð 6 101 Reykjavík.
Margir komu og skoðuðu fjölbreytt verk nemenda og þáðu svaladrykk. Takk öll þið sem lituð við í sólinni og sumrinu sem ríkti þessa helgina.
Hér má sjá nokkrar myndir frá opnun Uppskeruhátíðar.














Flestar myndir tók Stefanía Jóhönnudóttir.
Á Uppskeruhátíð sýndu nemendur Ljósmyndaskólans afrakstur af vinnu vetrarins.
Nemendur Námsbrautar í skapandi ljósmyndun 1 sýndu útskriftarverkefni af námsbrautinni. Þau voru sannarlega ólík að efnistökum og útfærslu.
Þau sem útskrifast af Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1, að þessu sinni og áttu verk á sýningunni eru: Ástrós Lind Halldórudóttir,Kotryna Rustelyte, Kjartan Hreinsson, Karen Ketilbjarnardóttir, Melkorka Gunnarsdóttir, Melkorka Embla Hjartardóttir,Ólafur Guðmundsson og Drífa Huld Jóhannsdóttir.
Kynningu á útskriftarverkum þeirra má sjá á miðlum skólans.
Það var Sonja Margrét Ólafsdóttir sem leiðbeindi þeim í ferlinu.
Á Uppskeruhátíð sýndu nemendur skólans einnig fjölbreytt bókverk frá námsárinu.
/sr.
.