Þann 6. janúar sl. útskrifuðust 9 nemendur frá Ljósmyndaskólanum með diplómu í skapandi ljósmyndun.
Þau sem útskrifðustu að þessu sinni voru: Dagný Skúladóttir, Einar Óskar Sigurðsson, Guðný Maren Valsdóttir, Guðrún Sif Ólafsdóttir, Kristín Ásta Kristinsdóttir, Lovísa Fanney Árnadóttir, Sandra Björk Bjarnadóttir, Steinar Gíslason og Sóley Þorvaldsdóttir. Luku þau þar með námi á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 2 og höfðu þá í allt lokið 150 eininga námi í skapandi ljósmyndun við skólann.
Athöfnin fór fram í sýningarsal í Ljósmyndasafni Reykjavíkur – Grófarhúsi, að viðstöddum fjölskyldu og vandamönnum útskriftarnemenda, kennurum og starfsfólki skólans en undanfarin ár hefur Ljósmyndaskólinn verið í góðu samstarfi við Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Það felur í sér að sýning á útskriftarverkum nemenda er sett upp í sýningarsal Ljósmyndasafns í Grófarhúsi.
Eins og gefur að skilja ríkti gleði og kátína í bænum af þessu tilefni og við óskum hinum nýútskrifuðu ljósmyndurum innilega til hamingju, þökkum þeim samfylgdina síðustu misserin og biðjum þeim velfarnarðar í framtíðinni.
Útskriftarhópurinn að lokinni athöfn þann 6. janúar 2023.
Frá vinstri: Guðný Maren, Einar Óskar, Sandra Björk, Lovísa Fanney, Steinar,
Guðrún Sif, Kristín Ásta og Sóley. Á myndina vantar Dagnýju Skúladóttur.
/sr.