Fimmtudaginn þann 8. janúar útskrifuðust 4 nemendur af Námsbraut í skapandi ljósmyndun 2 í Ljósmyndaskólanum.
Það voru þau; Elva Þrastardóttir, Gunnar Ragnarsson, Lilja Birna Arnórsdóttir og Íris Hadda Jóhannsdóttir
Athöfnin fór fram í Ljósmyndasafni Reykjavíkur að viðstöddum ættingum og vinum útskriftarnemenda en sýning á útskriftarverkum þeirra stóð yfir í Ljósmyndasafninu frá 12. desember til 11. janúar. Sýningastjóri sýningarinnar var Katrín Elvarsdóttir
Fögnuður var ríkjandi í útskriftarathöfninni eins og vera ber.
Auðvitað voru flutt ávörp og skálað.
Við óskum þessum fjóru nýútskrifuðu listamönnum hjartanlega til hamingju með áfangann, þökkum þeim samfylgdina hér í Ljósmyndaskólanum og óskum þeim alls hins besta í framtíðinni.
Við væntum þess að þau muni láta að sér kveða á vettvangi samtímasljósmyndunar og að við munum sjá mikið af verkum þeirra á komandi tímum.
Þau hafa allt til að bera til að láta til sín taka.
Húrra fyrir því og þeim!
Hér má sjá myndir af útskriftarhópnum eftir útskriftarathöfnina.
Myndirnar tók Kristín Ásta Kristinsdóttir



