Umsóknarfrestur framlengdur til 6. júní.

Umsóknarfrestur um nám á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1 hefur verðið framlengdur til 6. júní 2022.

Umsækjendur um nám í Ljósmyndaskólanum þurfa að hafa lokið stúdentsprófi eða öðru sambærilegu námi. Gerð er krafa um almenna tölvukunnáttu.

Á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1 er kenndur grunnur í  ljósmyndun, ýmsar aðferðir við að beita ljósmyndamiðlinum og það að beita tækni og búnaði sem tilheyrir greininni. Nemendur læra á mismunandi tegundir myndavéla, að beita ljósabúnaði og að vinna með  ljós. Kennd er öll almenn stafræn myndvinnsla, prentun, skönnun og svarthvít filmuframköllun og stækkun. Aðferðir við listsköpun er mikilvægur þáttur í náminu  og nemendur eru einnig kynntir fyrir ýmsum  aðferðum til að þróa hugmyndir sínar og að halda utan um þær og eigið vinnuferli.

Námið er bæði bóklegt og verklegt og mikil áhersla er á að nemendur beiti ljósmyndatækninni og aðferðum við myndvinnslu á skapandi máta og hljóta þeirm mikla þjálfun í að beita tækninni við eigin listsköpun. 

Námið  á námsbrautinni nýtist vel öllum þeim sem áhuga hafa á ljósmyndamiðlinum og fjölbreyttum og skapandi möguleikum hans. Það er einnig góður grunnur fyrir frekara nám í  hverskonar sjónlistum.

Námið er lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna

Allar upplýsingar um námið og skólann er að finna á heimasíðu hans 

Umsóknarferlið um nám á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1 er 3 þrep; umsókn, mappa og viðtal.

Sótt er um skólavist af heimasíðu skólans.

Þar er líka að finna allar upplýsingar um umsóknarferlið

Ef þig vilt fá meira að heyra um umsóknarferlið eða námið við skólann endilega hringdu þá í okkur: sími 5620623 eða skrifaðu okkur póst: ljosmyndaskolinn@ljosmyndaskolinn.is

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna