Ljósmyndaskólinn býður upp á diplómanám í skapandi ljósmyndun.
Námið nýtist vel öllum þeim sem áhuga hafa á ljósmyndamiðlinum og fjölbreyttum og skapandi möguleikum hans. Það er einnig afar góður grunnur fyrir frekara nám í hverskonar sjónlistum.
Á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1 – 60 Fein einingar – er kenndur grunnur í ljósmyndun, ýmsar aðferðir við að beita ljósmyndamiðlinum og það að beita tækni og búnaði sem tilheyrir greininni. Nemendur læra á mismunandi tegundir myndavéla, að beita ljósabúnaði og að vinna með ljós. Kennd er öll almenn stafræn myndvinnsla, prentun, skönnun og svarthvít filmuframköllun og stækkun. Aðferðir við listsköpun er mikilvægur þáttur í náminu og nemendur eru einnig kynntir fyrir ýmsum aðferðum til að þróa hugmyndir sínar og að halda utan um þær og eigið vinnuferli.
Námið er bæði bóklegt og verklegt og er kennt í mislöngum áföngum sem dreifast yfir önnina, alls 30 Fein hvor önn. Í náminu er áhersla á að nemendur beiti ljósmyndatækninni og aðferðum við myndvinnslu á skapandi máta og hljóta þeir mikla þjálfun í að beita tækninni við eigin listsköpun.
Námið er á fjórða hæfniþrepi, nám eftir stúdentspróf
Umsóknarfrestur um nám næsta skólaár er til 25. maí 2024.
Sjá hér