Uppskeruhátíð Ljósmyndaskólans 2025

Uppskeruhátíð Ljósmyndaskólans 2025 stendur dagana 17. – 18. maí að Hólmaslóð 6 101 Reykjavík.
Opnun Uppskeruhátíðar er 16/05 kl. 16.00 – 18.00

Á Uppskeruhátíð sýna nemendur Ljósmyndaskólans afrakstur af vinnu vetrarins.
Nemendur Námsbrautar í skapandi ljósmyndun 1 sýna lokaverkefni sín sem eru jafnframt útskriftarverkefni af námsbrautinni. Þau sem útskrifast af Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1, að þessu sinni eru: Ástrós Lind Halldórudóttir, Kotryna Rustelyte, Kjartan Hreinsson, Karen Ketilbjarnardóttir, Melkorka Gunnarsdóttir, Melkorka Embla Hjartardóttir, Ólafur Guðmundsson og Drífa Huld Jóhannsdóttir. Við munum kynna útsriftarverk þeirra af námsbrautinni á miðlum skólans á næstunni.

Það var Sonja Margrét Ólafsdóttir sem leiðbeindi þeim í ferlinu. 

Á Uppskeruhátíð sýna einnig nemendur skólans fjölbreytt bókverk sem þau hafa unnið þetta námsár í ýmsum áföngum.

Uppskeruhátíð opnar þann 16. maí kl. 16.00 og verður opið laugardag 17/05 og sunnudag 18/05 kl. 12.00 – 17.00.
Nemendur verða á staðnum og taka á móti gestum og segja frá verkunum á sýningunni.
Heitt verður á könnunni – Verið öll velkomin.💥. 
Kynningarmynd er úr verki Melkorku Emblu Hjartardóttur – Ég gekk um með blóm í fjóra daga.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur