Þann 27. maí voru átta nemendur útskrifaðir af Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1.
Þau höfðu þá lokið 60 eininga námi í skapandi ljósmyndun við Ljósmyndaskólann þar sem áherslan var á að kenna tæknina að baki ljósmyndun, bæði stafræna tækni og að vinna með filmu og í myrkraherbergi. Eins er mikil áhersla í náminu á að kenna og þjálfa aðferðir við að beita ljósmyndatækninni á skapandi máta.
Útskriftarverkefni þessara nemenda voru afar ólík t.d. hvað varðar efnistök, fagurfræði og aðferðir.
Kynningu á útskriftarverkum þeirra má sjá á miðlum skólans.
Útskriftarnemendurnir voru :Ástrós Lind Halldórudóttir,Kotryna Rustelyte, Kjartan Hreinsson, Karen Ketilbjarnardóttir, Melkorka Gunnarsdóttir, Melkorka Embla Hjartardóttir,Ólafur Guðmundsson og Drífa Huld Jóhannsdóttir.
Til hamingju öll !



Á myndina vantar Karen Lind Ketilbjarnardóttur.
/sr.