Sýning á útskriftarverkum nemenda Ljósmyndaskólans var haldin í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, – Grófarsal. Stóð sýningin frá 15. desember 2023 til 14. janúar 2024.
Uppsetning á sýningu á útskriftarverkum nemenda markar lok náms nemenda við Ljósmyndaskólans en þau luku þar með 5 anna námi og útskifuðust með diplómu í skapandi ljósmyndun.
Fjölbreytni í útsriftarverkum nemenda var mikil og sönnuðu viðfangsefni og aðferðir nemenda vítt svið. Þar tókust þau á við ólík málefni út frá ólíkum forsendum, mismunandi nálgun, listrænni sýn og fagurfræði. Framsetning var á ýmsu formi en á sýningunni mátti sjá bókverk, videóverk, skúlptúra, klippiverk, innsetningar í bland við prent sem hengd voru á vegg.
Verkin á sýningunni endurspegluðu gróskuna í samtímasljósmyndun og fjölbreytta möguleika sem í ljósmyndamiðlinum felast.
Útskriftarnemendur:
Ásta Guðrún Óskarsdóttir, Grace Claiborn Barbörudóttir, Harpa Thors, Heiðrún Fivelstad, Helgi Vignir Bragason og Natasha Harris.
Sýningarstjóri: Katrín Elvarsdóttir
Myndir af sýningu tók Marinó Flóvent