Dagana 16. til 20. febrúar standa Samtök sjálfstæðra listaskóla fyrir kynningardögum en samtökin eru regnhlífarsamtök sjálfstætt starfandi listnámsskóla.
Að þessu sinni taka 6 skólar þátt í kynningardögunum en það eru Klassíski listdansskólinn, Myndlistarskólinn í Reykjavík, Söngskólinn í Reykjavík, Kvikmyndaskóli Íslands og Söngskóli Sigurðar Demenz auk Ljósmyndaskólans.
Nánar má sjá um samtökin og viðburði hjá einstökum skólum á vef samtakanna.
Í Ljósmyndaskólanum verður Opið hús dagana 16. og 17. febrúar.
Upplagt er að nota þetta tækifæri til að fræðast um diplómanám í skapandi ljósmyndun.
Ljósmyndaskólinn er til húsa að Hólmaslóð 6, 101 Reykjavík.
Verið öll velkomin.
16. febrúar kl. 13.00 – 16.00 Hægt verður að fylgjast með verklegri kennslustund í stúdíói, skoða verkefni nemenda skólans á ýmsum stigum og fá allar upplýsingar um námið sem boðið er upp á í skólanum
17. febrúar kl. 10.00 – 14.00 Hægt verður að fylgjast með verklegri kennslustund í myrkraherbergi, skoða verkefni nemenda skólans á ýmsum stigum og fá allar upplýsingar um námið sem boðið er upp á í skólanum.
Verið öll velkomin.
Einnig er auðvitað alltaf hægt að skrifa okkur póst með fyrirspurnum eða að hringja í okkur, sími 5620623.