Nemendur á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1 hafa nú í febrúar tekið þátt í vinnustofunni Portrettseríur og unnu þar undir handleiðslu Spessa.
Í vinnustofunni var sjónum beint að portrettseríum, möguleikum þeirra í samtímaljósmyndun. Nemendur unnu verkefni og fengu handleiðslu við það að búa til heildstæða myndaröð af fólki og að beita mikilvægum þáttum í uppbyggingu á portrettseríum svo sem eins og vali á myndum og vali á sjónarhorni í frásögn.
Að loknum skilum og yfirferð í áfanganum var að sjálfsögðu tekin hópmynd eins og hefðin segir til um.