Listamaður vikunnar – Guðrún Sif Ólafsdóttir – Kafli í Líflínu

Listamaður vikunnar hefur hluta af vegg í skólahúsnæðinu til umráða í eina viku og getur birt þar verk sín. Nemendur eru hvattir til þess að nota tækifærið og gera ýmiskonar tilraunir með útfærslu og framsetningu á verkunum.

Listamaður þessarar viku er Guðrún Sif Ólafsdóttir nemandi á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 2. Sýnir hún verkið Kafli í Líflínu sem er verk í vinnslu.

Guðrún segir þetta um verkið:

Hvernig spilum við úr spilunum sem okkur eru gefin í lífinu? Tökumst við á við erfiðleikana sem krefjandi verkefni sem við ætlum að sigrast á, eins og einn kafla sem við þurfum að ljúka í líflínu okkar til að komast upp á næsta þrep? 

Móðurástin er eitt sterkasta afl sem fyrirfinnst. En hvað gerir það hjartanu þegar þú ert móðir eina viku í senn á móti annarri viku þar sem litlu börnin þín eru fjarri þér á öðru heimili? Hvernig fyllir þú upp í tómarúmið sem skapast við að vera án þeirra? Hvernig tekst þú á við allar þær tilfinningar sem brjótast um í brjóstinu og hjartasárið yfir nýjum veruleika? 

Í gegnum vegferð mína hef ég stuðst við ljósmyndun og leyft myndavélinni að leiða mig áfram til þess að greiða úr tilfinningaflækjunni í einhvers konar sjálfs listþerapíu. Ég sótti enn meira í náttúruna og fann öflin þar gefa mér aukin styrk og frelsi. Ég skil lífið betur í gegnum myndavélina og hef unun af því alla daga að kafa dýpra í miðilinn. 

Það má segja að verkið Kafli í Líflínu sé verk í vinnslu, því verkið er flæðandi og hefur hvorki upphaf né endi.

Ef til vill sé ég verkið endanlega fyrir mér sem bókverk eða  sem kafla í bókverki. 

Instagram: @gsifolafs

 

Uppsetning verksins Kafli í Líflínu í rými í Ljósmyndaskólanum

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur
Forvarnaráætlun
Alþjóðstefna
Áfallaáætlun