VINF4VI04 Vinnustofur

Vinnustofurnar eru starfsvettvangur nemenda og gestakennara sem allir eru starfandi ljósmyndarar/listamenn. Vinna þeir með nemendum í afmarkaðan tíma. Í vinnustofum eru tekin fyrir ýmis verkefni sem tengjast listsköpun, s.s. hugmyndavinna, rannsóknir og mismunandi aðferðir og tækni.

Tvær vinnustofur eru í þessum áfanga sem hvor um sig er 2 Fein.

Vinnustofukennarar ráðleggja lesefni og annað námsefni hverju sinni sem hentar heildarviðfangsefni vinnustofunnar og/eða verkefnum einstakra nemenda.

Markmið áfangans er að að opna augu nemenda fyrir því hvernig nota má ljósmyndun á mismunandi hátt í listrænum tilgangi og að þjálfa þá í skapandi starfi með miðilinn. Enn fremur er markmiðið að ýta undir sköpunarkraft nemenda og að leitast við að opna þeim nýjar leiðir í persónulegri tjáningu.

Í lok áfangans hafa nemendur kynnst því að starfa með ólíkum listamönnum. Þeir hafa kynnst mismunandi hugmyndum, vinnubrögðum og aðferðum í listsköpun og aukið við skilning sinn á fjölþættri notkun ljósmyndamiðilsins til tjáningar og sköpunar.

Vinnustofurnar eru fjölbreyttar að formi og geta samanstaðið af: fyrirlestrum, hóptímum, einkatímum, sýnikennslu, vettvangsferðum og verklegum æfingum: 60 stundir.

Eigin verkefnavinna: 36 stundir.

Námsmat: verkefni, vinnubækur og virkni í tímum.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur
Forvarnaráætlun
Alþjóðstefna
Áfallaáætlun