LILI4LL02 Að lifa af í listheiminum, 1. hluti

Markmið áfangans er að nemendur skilgreini ætlanir og markmið með ljósmyndun, greini áhrifavalda sína og rannsaki hverju þeir vilja koma á framfæri.

Nemendur eru kynntir fyrir mismunandi eiginleikum ólíkra samfélagsmiðla og mikilvægi þeirra til kynningar. Skoðaðar eru leiðir til að nota slíka miðla til kynningar og hvað ber að hafa í huga og hvað að varast. Nemendur hljóta þjálfun í því að vinna efni og upplýsingar til birtingar á mismunandi samfélagsmiðlum.

Í lok áfangans er ætlunin að nemendur hafi hlotið nokkra yfirsýn yfir og þekkingu á eðli ólíkra samfélagsmiðla og mikilvægi þeirra. Þeir eiga að hafa öðlast nokkurn skilning á því að til að geta sem best kynnt verk sín á samfélagsmiðlum þarf hver og einn að hafa rannsakað eigin ætlanir og markmið. Nemendur hafa fengið kynningu á  og þjálfun í vinnubrögðum við að safna efni, vinna það og birta á ólíkum miðlum.

Fyrirlestrar, sýnikennsla, hópvinna: 10 stundir

Eigin verkefnavinna: 38 stundir

Námsmat: einstaklings- og hópverkefni

Ráðlagt lesefni:

  • Volk, LarryNo Plastic Sleeves: The Complete Portfolio Guide for Photographers and Designers.Focal Press.
Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur
Forvarnaráætlun
Alþjóðstefna
Áfallaáætlun