Listamaður vikunnar hefur ákveðið pláss í skólahúsnæðinu til umráða í eina viku og getur birt þar verk sín.
Nemendur eru hvattir til þess að sækja um að vera Listamaður vikunnar allavega einu sinni á hverju námsári og að nota tækifærið til að gera ýmiskonar tilraunir með útfærslu og framsetningu á verkunum sínum.
Verkefnaval í Listamaður vikunnar er fjölbreytt og nemendur sýna jafnt skilaverkefni úr áföngum námsins eða ýmis önnur verkefni sem þau eru að vinna að.
Listamaður þessarar viku er Ingunn Rós Haraldsdóttir nemandi á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 2.
Hún segir þetta um verkefnið:
Frá ömmu
Verkið Frá ömmu er manifesto verkefni sem ég setti mér fyrir, en markmiðið var að klára 35mm svarthíta filmu á leiðinni heim frá ömmu. Ég vildi fanga minninguna sem fylgir heimleiðinni sem virðist aldrei vera eins þrátt fyrir sömu leiðina.
Ég varð fyrir miklum áhrifum í vinnustofuáfanganum landslag, landslagseríur hjá Pétri Thomsen. Þar fékk ég nýja sýn á íslenska landslagsljósmyndun. Eftir áfangann hef ég verið að skrásetja staði og mismunandi landslag þar sem landslag virðast vera stanslaust að breytast.
/sr.