Útskriftarsýning Ljósmyndaskólans 2024

Opnun: 13. desember 2024
Staðsetning : Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Sýning á útskriftarverkum nemenda Ljósmyndaskólans var haldin í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, – Grófarsal. Stóð sýningin frá 13. desember 2024 til 5. janúar 2025.

Sýning á útskriftarverkum nemenda Ljósmyndaskólans var haldin í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, – Grófarsal. Stóð sýningin frá 13. desember 2024 til 5. janúar 2025. 

Uppsetning á sýningu á útskriftarverkum nemenda markar lok náms þeirra við Ljósmyndaskólans. Nemendur ljúka þar með 5 anna listnámi og útskifast með diplómu í skapandi ljósmyndun.

Útskriftarverk þeirra fjögurra nemenda sem útskrifuðust að þessu sinni voru fjölbreytt enda viðfangsefni og aðferðir nemenda mismunandi. Í verkunum tókust útskriftarnemendurnir á við ólík málefni út frá ólíkum forsendum, mismunandi nálgun, listrænni sýn og fagurfræði.  Þar var fjallaðu um fortíð og framtíð, unnið með fundið efni, leitast við að varpa ljósi á ólíkar upplifanir og að skapa rými til umhugsunar fyrir áhorfandann. Framsetningarmáti útskskriftarverka var nokkuð fjölbreyttur; ýmis prent á vegg en einnig vídeóverk. Einnig voru til sýnis bókverk nemenda útskriftarhópsins, sem unnin höfðu verið á meðan á námstíma stóð en þar mátti víða sjá vísi að því viðfangsefni sem viðkomandi tókst á við í lokaverkefni sínu.

Verkin á sýningunni endurspegluðu sannarlega gróskuna í samtímasljósmyndun og fjölbreytta möguleika sem í ljósmyndamiðlinum felast.

Útskriftarnemendur:

Ingunn Haraldsdóttir, María Ármanns, Sigríður Hermannsdóttir og Vala Agnes Oddsdóttir

.

Sýningarstjóri: Katrín Elvarsdóttir

Myndir af sýningu tók Kristín Ásta Kristinsdóttir

Myndir frá sýningu

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur