VINF4VI09 Vinnustofur

Vinnustofurnar eru starfsvettvangur nemenda og gestakennara sem allir eru starfandi ljósmyndarar/listamenn. Í vinnustofum eru tekin fyrir verkefni sem tengjast listsköpun, s.s. hugmyndavinna, rannsóknir og mismunandi aðferðir og tækni. Nememdur fá  þarna tækifæri til að kynnast ólíkum listamönnum/ljósmyndurum, vinnubrögðum þeirra, aðferðum og hugmyndum. Í áfanganum vinna nemendur að eigin rannsóknar- og ljósmyndaverkefnum undir handleiðslu gestakennaranna. Kennslan er fjölþætt; fyrirlestrar, sýnikennsla, verklegar æfingar, verkefni, vettvangsferðir, málstofur og samtal nemenda og kennara.

Þrjár vinnustofur eru í boði á þessari önn og er hver þeirra 3 Fein.

Kennari í vinnustofu bendir á bækur og ráðleggur um lesefni sem hentar viðfangsefni hverrar vinnustofu og/eða verkefnum einstakra nemenda.

Markmið áfangans er að að opna augu nemenda fyrir því hvernig nota má ljósmyndun á mismunandi hátt í listrænum tilgangi og að veita þeim þjálfun í skapandi starfi með miðilinn. Enn fremur er markmiðið að ýta undir sköpunarkraft nemenda og að leitast við að opna þeim leiðir í persónulegri tjáningu.

Í lok áfangans hafa nemendur kynnst því að starfa með ólíkum listamönnum, hafa kynnst mismunandi hugmyndum, vinnubrögðum og aðferðum í listsköpun og aukið við skilning sinn á fjölþættri notkun ljósmyndamiðilsins til tjáningar og sköpunar.

Í vinnustofum eru mismunandi áherslur en þær geta samanstaðið af fyrirlestrum, hóptímum, einkatímum, sýnikennslu, vettvangsferðum og verklegum æfingum: 140 stundir.

Eigin verkefnavinna: 76 stundir.

Námsmat: verkefni og vinnubækur.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur
Forvarnaráætlun
Alþjóðstefna
Áfallaáætlun