Listamaður/listakona vikunnar hefur pláss í skólahúsnæðinu til umráða í eina viku og nemendur hvattir til þess að sækja um og að nota tækifærið til að gera ýmiskonar tilraunir með útfærslu og framsetningu á verkunum sínum.
Verkefnavalið er fjölbreytt og nemendur sýna skilaverkefni úr áföngum námsins eða önnur verkefni sem þau eru að vinna að.
Listamaður vikunnar að þessu sinni er Elín Laxdal nemandi á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1. Hún sýnir skilaverkefni sitt í áfanganum Aðferðir við listsköpun en þar unnu nemendur verkefni undir handleiðslu Spessa. Í áfanganum er áhersla einkum á að nemendur tileinki sér vinnubrögð við rannsóknarvinnu. Fá nemendur úthlutað svæði í Reykjavíkt til að vinna með og verkefni þeirra er að vinna rannsóknarverkefni undir handleiðslu kennara. Að þessu sinni voru það svæðin Skeifan og Höfðin sem urðu fyrir valinu. Þar er blönduð byggð af allskonar og fjölbreytt starfssemi sem spennandi er að skoða.
Hópurinn ver hluta kennslutíma á staðnum með kennara þar sem spáð og spegúlerað er í mögulegum viðgangsefnum hópsins, spjallað við fólk, drukkið kaffi og allt það sem þarf til að taka inn anda hverfisins.
Elín Laxdal – Skeifan
Skeifan mun taka miklum breytingum á næstu árum og því full ástæða til þess að skrásetja sögu henna með myndum. Ráðgert er að stórar byggingar með íbúðum og verslunarhúsnæði rísi á þeim hluta svæðisins sem er næst Suðurlandsbraut. Afleiðing af því verður m.a. að fyrirtæki eins og KFC og Metro þurfa að flytja sig um set og óvisst hvar þessar mikilvægu fóðurstöðvar reykvíkinga verður að finna.
Verkefnið var mjög skemmtilegt og lærdómsríkt, ekki síst vegna þess að Spessa tókst loks að kenna mér að taka ljótar myndir.











/sr.