LIST04LI02 Listasaga 2. hluti

Markmið áfangans er að fjalla um myndlist 20. og 21. aldar og endurskoðun listamanna á hugmyndafræði og nálgun myndlistar. Fjallað verður um tilkomu framúrstefnulistar og mikilvægi hennar í þróun samtímalistar. Enn fremur um þróun samtímalistar í ýmsum löndum með áherslu á tengingu við íslenska myndlist. Áhersla verður á að draga fram mikilvægi nýrra miðla í samtímalist t.d. ljósmynda, kvikmynda, hljóðlistar, tölva, o.s.frv. Farið verður í heimsókn á listsýningu ef því verður við komið. Nemendur vinna skriflegt rannsóknarverkefni (1.500 orð) um valið myndlistarverk og hver nemandi vinnur einnig ljósmynd út frá viðfangsefnum námskeiðisins og skilar um verkið 300 orða greinargerð.

Í lok áfangans eiga nemendur að hafa almenna yfirsýn yfir þróun myndlistar á 20. öld og stöðu hennar á 21. öld. Eiga að skilja og geta fjallað um framúrstefnulist 20. aldar og greint frá helstu áhrifum hennar á samtímalist. Þeir þurfa að geta fjallað um þátt nýrra miðla í þróun myndlistar 20. aldar og að skilja mikilvægi þeirrar þróunar. Ætlast er til að nemendur geti unnið sjálfstæð verk út frá hugmyndum samtímamyndlistar og fjallað um þau í því samhengi.

Fyrirlestrar, vettvangsferð: 15 stundir.

Eigin vinna og gagnaöflun: 33 stundir.

Námsmat: Ritgerð, greinargerð og ljósmyndaverkefni.

Ráðlagt lesefni:

  • Freeland, CynthiaBut is it Art?: An Introduction to Art Theory. OUP Oxford.
Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur