LJSA4LS02 Ljósmyndasaga 1. hluti

Markmið áfangans er að fara yfir sögu ljósmyndunar frá upphafi og fram yfir miðja 20. öld, bæði á Íslandi og í alþjóðlegu samhengi. Nemendur kynnast ólíkum straumum og stefnum í ljósmyndun og hvernig þær tengjast hræringum í listheimi, tækniveröld og samfélagi á hverjum tíma.

Nemendur velja sér ljósmyndara, þurfa að afla sér heimilda, vinna um hann ritgerð og kynna efni hennar fyrir samnemendum í málstofu. Einnig vinna nemendur ljósmyndaverkefni í anda valins ljósmyndara úr ljósmyndasögunni.

Í lok áfangans eiga nemendur að kunna skil á helstu áhrifavöldum í ljósmyndasögunni, tengslum hennar við aðra listsköpun og samfélag og þekkja mismunandi áherslur eða stefnur í ljósmyndun á ólíkum tímabilum.

Fyrirlestrar, málstofa, vinna undir handleiðslu: 34 stundir.

Eigin verkefnavinna, gagnaöflun og ritgerð: 14 stundir.

Námsmat: Ritgerð, fyrirlestur, verkefni.

Ráðlagt lesefni:

  • Goldberg, Vicki, ritstjóri: Photography in Print: Writings from 1816 to the Present. University of New Mexico Press.
  • Inga Lára BaldvinsdóttirLjósmyndarar á Íslandi 1845–1945. Þjóðminjasafn Íslands.
  • Marien, Mary WarnerPhotography: A Cultural History. Pearson.
  • Rosenblum, NaomiWorld History of Photography. Abbeville Press.
  • Trachtenberg, Alan, ritstjóri: Classic Essays on Photography. Leete´s Island Books.
Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna