RÝRÆ4RR02 Að rýna og ræða

Markmið áfangans er að þjálfa nemendur í að ræða innihald texta, að rökræða og skiptast á skoðunum um þá en ekki síst að hvetja þá til að tengja innihald þessara texta öðrum þáttum námsins. Nemendur kynna sér tiltekna fyrirfram valda texta sem allir fjalla um eða snerta ljósmyndamiðilinn á einhvern máta, s.s. ritgerðir um kenningar, hugmyndasögu, heimspeki eða ævisögur merkra listamanna. Í kennslustundum eru þessir textar lagðir til grundvallar umfjöllun og umræðum.

Í lok áfangans er gert ráð fyrir því að nemendur hafi öðlast þjálfun í að lesa, fjalla um og rökræða ólíka texta sem allir hafa snertiflöt við ljósmyndun og styrkt með því móti hugmyndalegan grunn verkefna sinna.

Málstofa, greinargerð, verkefni: 10 stundir.

Eigin verkefnavinna: 38 stundir.

Námsmat: Verkefni.

Skyldulesefni:

  • Bosworth, PatriciaDiane Arbus: A Biography. Open Road Meadia.
  • Sigrún SigurðardóttirAfturgöngur og afskipti af sannleikanum. Þjóðminjasafn Íslands.
Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna