Við lok náms á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1 taka nemendur áfanga sem nefnist Lokaverkefni. Þar er markmiðið að samþætta alla námsþætti námsbrautarinnar og að gefa nemendum tækifæri til þess að fara í gegnum ferlið frá hugmynd til fullbúins verks með eina af hugmyndum sínum.
Nemendur velja eitt af skilaverkefnum námsársins og fá aðstoð við að útfæra það til sýningar á Uppskeruhátíð. Það var Sonja Margrét Ólafsdóttir sem vann með nemendum í áfanganum. Hún er jafnframt sýningarstjóri Uppdkeruhátíðar þar sem nemendur sýna verkin sem þau unni í áfanganum Lokaverkefni.
Auður Lilja Arnþórsdóttir er ein þeirra nemenda sem nú útskrifast af Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1.
Verkið nefnir hún Líkn.
Hún segir þetta:
Stór hluti hálendis Íslands er hulinn malarkápu, sem er þétt lag smásteina. Þessi kápa gegnir mikilvægu hlutverki. Hún veitir smágerðum gróðri hálendisins skjól og tryggir að fínn jarðvegurinn sem undir henni er fjúki ekki upp. Hún er eins og húð á dýrum. Ef malarkápan er rofin blæðir landinu.
Því miður átta ekki allir sig á mikilvægi og fegurð malarkápunnar. Sumir virðast líta á hálendið sem stóran sandkassa til að leika sér í; vippa sér út fyrir slóða, aka upp á næsta hól eða spóla í hringi. Landverðir og ýmsir sjálfboðaliðar reyna að lagfæra förin til að aðstoða náttúruna við að lækna sárin og flýta fyrir bata.
Með þessu verki vil ég vekja athygli á hvernig skemmdir á malarkápu hálendisins draga úr möguleikum gróðurs til að dafna. Ég nota myndir sem ég hef tekið af utanvegaakstursförum og legg yfir þær myndir af gróðri sem ég hef tekið á sömu slóðum. Þetta er eins konar sjónræn lækning – og því nefni ég verkið Líkn. Ekki svo að skilja að ég vilji að gróðurinn taki yfir malarkápuna, því hún er falleg og mikilvæg eins og hún er, heldur vil ég beina sjónum að samhenginu. – Ef vill, má yfirfæra þetta á áhrif annarra verka mannsins á náttúruna almennt.
Allar myndirnar hef ég tekið á Sprengisandi og nálægum svæðum, og sett saman í Photoshop.
Í tengslum við vinnslu verksins urðu til þessar hækur:
Þétt malarkápa,
skjól viðkvæms gróðurs, rifin
af óvitaskap?
Líknandi hjúpur
blómstrandi gróðurs, umvefur
sundurskorna jörð.



/sr.