Kvennaklefinn
Portrettsería Dagnýjar er innblásin af hugrekki og kjarki ungra íþróttakvenna sem vöktu athygli á ójafnrétti í íslensku íþróttalífi. Í verkinu rýnir hún í birtingarmyndir stúlkna í dag samanborið við fundið efni sem hún komst yfir en það voru 60 ára gamlar ljósmyndir af virðulegum íþróttakonum. Dagný vildi upphefja stúlkur sem þora að sýna sjálfsöryggi sitt með ákveðni, stolt og sjálfsvirðingu í augunum.
Dagný tekur myndirnar á „medium-format“ filmuvél og notar gamla tækni til að fanga sterkt augnaráð stúlknanna. Áherslan og fókusinn er á augu þeirra en neðri hluti myndflatarins er látinn fjara út.
Instagram @dagnyskula