Brynja Sveinsdóttir

Sýningarstjóri

Upplýsingar

BA listfræði og heimspeki, HÍ

MA, hagnýt menningarmiðlun, HÍ

MA sýningarstjórnun, Stockholms Universtitet

Kennir: Aðferðir við listsköpun

Brynja Sveinsdóttir er sýningarstjóri sem starfar sem verkefnastjóri safneignar og miðlunar í Gerðarsafni.

Brynja lauk B.A. námi í listfræði og heimspeki við Háskóla Íslands 2010 og M.A. námi í hagnýtri menningarmiðlun við sama skóla 2011. Hún stundaði M.A. nám í sýningarstjórn við Stokkhólmsháskóla 2012-2014 og var í starfsnámi í Moderna Museet í Stokkhólmi undir lok námstímabilsins.

Brynja hefur unnið að gerð sýninga frá útskrift, bæði sjálfstæðra sýningarverkefna og í starfi hjá listasöfnum. Hún starfaði sem aðstoðarmaður sýningarstjóra í Moderna Museet 2014; verkefnastjóri sýninga og safnfræðslu á Ljósmyndasafni Reykjavíkur 2015 og starfar nú við sýningarstjórn og verkefnastjórn í Gerðarsafni. Brynja hefur stundað kennslu við myndlistar- og hönnunardeild Listaháskóla Íslands og Ljósmyndaskólann frá árinu 2016.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna