Saga Sigurðardóttir lærði ljósmyndun í London og starfaði þar í sjö ár. Nú býr hún í Reykjavík þar sem hún starfar sem ljósmyndari, leikstjóri, myndlistamaður og kennari.
Ljósmyndir Sögu hafa verið birtar um allan heim en hún hefur meðal annars unnið fyrir Apple, Nike, Vogue, Dazed and Confused. Hún hefur einnig unnið með listamönnum á borð við Björk, M.I.A og Patrick Wolf.
Undanfarin ár hefur Saga einnig verið að vinna abstrakt málverk sem hlotið hafa mikla athygli.