Hendrikka Zimsen – Faldi mig í sprungum fjallsins

Hendrikka Zimsen er ein 8 nemenda sem útskrifast úr diplómanámi í skapandi ljósmyndun frá Ljósmyndaskólanum í byrjun árs 2022. Útskriftarverkefni nemendanna eru sýnd í Ljósmyndasafni Reykjavíkur og stendur sýningin til 9. janúar.

Faldi mig í sprungum fjallsins

Í verkinu Faldi mig í sprungum fjallsins er Hendrikka að vinna með innra líf einstaklingsins og yfirþyrmandi tilfinningar. Hún sækir innblástur í náttúruna og sér sjálfa sig í óheflaðri fegurð hennar og leitast við að setja það ósýnilega sem býr innra með okkur í sýnilegan búning með myndmáli náttúrunnar. Í verkum Hendrikku endurspeglar náttúran því yfirgnæfandi og ógnvekjandi mannlegar tilfinningar sem geta verið íþyngjandi og erfiðar að takast á við. Hendrikka leitast við að birta andstæðar hliðar manneskjunnar á einlægan hátt, hið góða og hið slæma, hið sýnilega og hið falda, fegurðina og ljótleikann.         

Hendrikka setur myndirnar fram í tvennum og vinnur á þann hátt með lausn og uppgjör á innri ólgu þar sem yfirþyrmandi tilfinning er ráðandi annars vegar og hins vegar er búið að aðskilja hana frá manneskjunni, hún komin út úr aðstæðunum og eftir situr tilfinningin ein. 

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna