Við lok náms á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1 taka nemendur áfanga sem nefnist Lokaverkefni. Þar er markmiðið að samþætta alla námsþætti námsbrautarinnar og að gefa nemendum tækifæri til þess að fara í gegnum ferlið frá hugmynd til fullbúins verks með eina af hugmyndum sínum.
Nemendur velja eitt af skilaverkefnum námsársins og fá aðstoð við að útfæra það til sýningar á Uppskeruhátíð. Það var Claudia Hausfeld sem vann með nemendum í áfanganum.
Kristín Gjöverå. – (In case you lose this one)
Verkið fjallar um ferð mína í gegnum meðgöngur, missi og kvíða ásamt reynslu minni af því að vera ólétt kona í ópersónulegu og kuldalegu heilbrigðiskerfi.
Í uppsetningu verksins má sjá nokkuð mjúka tímalínu atburða flæða í gegn. Tilfinningalega hliðin er öðrum megin og klíníska hinum megin.
Með verkinu fylgir þráhyggjukennd skráning á hreyfingum barns í móðurkviði, allt frá fyrstu hreyfingu til hinnar seinustu.
/sr.