Listamaður/listakona vikunnar hefur pláss í skólahúsnæðinu til umráða í eina viku og nemendur hvattir til þess að sækja um og að nota tækifærið til að gera ýmiskonar tilraunir með útfærslu og framsetningu á verkunum sínum.
Verkefnavalið er fjölbreytt og nemendur sýna skilaverkefni úr áföngum námsins eða önnur verkefni sem þau eru að vinna að.
Listamaður vikunnar að þessu sinni er Auður Lilja Arnþórsdóttir, nemandi á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1.
Hún segir þetta:
Í mjög áhugaverðum áfanga í listasögu í Ljósmyndaskólanum, sem Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir kenndi, fengum við það verkefni að vinna ljósmyndaverk í anda einhvers listaverks í listasögunni fram til 1900. – Það var því úr nógu að velja. – Ég ákvað að fara bara í upphafið, sem kannski er ekki alltaf tekið sem hluti af listasögunni heldur meira sögu mannkyns, þ.e.a.s. hellaristur frá steinöld (um 20 þúsund ára gamlar). Myndskreytingar sem ég heillaðist af eru í helli í Lascaux héraði í Frakklandi. Þar eru um 600 myndir af dýrum, aðallega hrossum. Lampi úr steini og leifar af dýrafitu hafa fundist í hellinum sem bendir til að þannig hafi hellirinn verið lýstur upp og í flökti ljóssins virðast dýrin hreyfast. Í hvaða tilgangi myndirnar í hellinum voru málaðar er á huldu en ýmsar tilgátur hafa verið settar fram, m.a. að með þeim hafi fólk verið að leggja álög á dýrin til að ná valdi á þeim. En mér finnst eftirtektarvert hversu listrænar myndirnar eru og á erfitt með að trúa að þær hafi eingöngu verið gerðar í praktískum tilgangi. Þær vöktu mig til umhugsunar um hversu sterk sköpunarþörf manneskjunnar er og hvort hún hafi alltaf verið til staðar.
Fyrir þetta verkefni vann ég tvær myndir í anda myndanna í Lascaux hellinum með því að velja og setja saman mínar eigin myndir af hestum og bakgrunnum sem mér fannst henta og vann þær í photoshop. Ég reyndi að ná fram anda myndanna án þess að ætla mér að gera nákvæma eftirhermu. Nánari upplýsingar um Lascaux hellinn má finna hér: https://archeologie.culture.gouv.fr/lascaux/en
Hestaristur 1

Fyrirmynd og bakgrunnsmyndir sem Auður notaði við gerð Hestaristur 1.



Hestaristur 2

Fyrirmynd og bakgrunnsmyndir sem Auður notaði við gerð Hestaristur 2.




/sr.