Listamaður vikunnar -Ósk Ebenesersdóttir- Óvænt samtal.

Ósk Ebenesersdóttir er listamaður vikunnar. Hún sýnir tvö stór prent sem hún nefnir Óvænt samtal.

Hún segir eftirfarandi:

Tvær myndir teknar á filmuvél Mamiya 645 síðastliðið sumar. 

 Önnur sýnir börn á leik við ána á Flúðum, tekin á góðviðrisdegi. Hin er tekin við Hafravatn með ICM (intentional camera movement) tækni, þar sem hreyfingin leysir upp landslagið og Esjan sést í bakgrunni. 

Fyrir þetta verkefni  var ég  að prenta í fyrsta skiptið á rúllu og ætlaði upphaflega aðeins að prenta myndina frá Flúðum, en fyrir mistök fór hin myndin í prentun líka. Það reyndist vera heppni því þær tala saman þrátt fyrir að vera ólíkar. 

Í fyrri myndinni opnast rýmið í lögum, með börnum, vatni, bakka og landslagi. Augnablikið dreifist yfir myndflötinn. Í hinni fellur rýmið saman og hreyfingin dregur allt að yfirborði þar sem land og vatn renna saman. 

 Með því að horfa á þær saman má velta  fyrir sér hvernig mynd getur bæði haldið utan um stað og leyst hann upp.

/sr.