Listamaður vikunnar – Svala Rún – Án titils

Listamaður/listakona vikunnar hefur pláss í skólahúsnæðinu til umráða í eina viku og nemendur hvattir til þess að sækja um og að nota tækifærið til að gera ýmiskonar tilraunir með útfærslu og framsetningu á verkunum sínum.
Verkefnavalið er fjölbreytt og nemendur sýna skilaverkefni úr áföngum námsins eða önnur verkefni sem þau eru að vinna að.

 Svala Rún nemandi á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1 er listamaður vikunnar að þessu sinni. Hún sýnir verkefni sem hún vann í vinnustofunni Samtímaljósmyndun nú á haustönn en þar var það Pétur Thomsen sem leiddi nemendur í vinnu, skoðuð voru mismunandi viðfangsefni í samtímaljósmyndun, aðferðir, nálgun og sjónarhorn. Nemendur fengu að kynnast fjölmörgum ólíkum ljósmyndurum sem beita miðlinum með mismunandi hætti í samtímanum.

Svala segir:

Verkefnið var unnið í vinnustofunni Samtímaljósmyndun og snerist um að fanga líf og umhverfi ungra hinsegin kvenna á Íslandi. Þegar ég skilaði verkefninu í áfanganum fann ég fyrir þeirri þörf að halda áfram þessari skrásetningu og er verkið því enn í vinnslu og án titils. 

/sr.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna
Umhverfisstefna
Stefnur og viðbragðsáætlanir
Ársreikningar og skýrslur
Ársreikningar og skýrslur
Forvarnaráætlun
Alþjóðstefna
Áfallaáætlun