Námskeið í bókasaumi.
Kynnt verða mismunandi bókaform og aðferðir við handgerðar bækur.
Þátttakendur fá aðstoð við að handsauma og binda inn bók.
Kennt verður tvö kvöld.
18. nóvember kl. 17.00 – 20.00
25. nóvember kl. 17.00 – 21.00
18. nóvember – Fyrra kvöld:
Orri kynnir ýmsar tegundir bókaforma og mismunandi aðferðir við bókagerð. Hann kemur með sýnishorn af ólíkum gerðum bókverka og fer yfir hvernig form og handverk bókarinnar mótar upplifun lesandans á innihaldinu. Farið er yfir praktísk atriði fyrir bókagerð eins og t.d hvernig best er að undirbúa sig varðandi uppsetningu, útprentun á efni o.s.frv. Farið verður yfir öll skref “perfect binding”, sem er aðferðin sem unnið verður með á seinna kvöldi námskeiðsins, og kennari aðstoðar nemendur við ákvörðun um stærð og form bókarinnar sem þau vilja gera. Ef tími gefst til geta nemendur undirbúið bókina sem þau vilja sauma með því að skera niður blöðin og brjóta, mótað kápuefnið o.s.frv.
25. nóvember – Seinna kvöld:
Nemendur handsauma og binda inn sína eigin bók. Aðferðin sem verður kennd er svokölluð “perfect binding,” þar sem við saumum saman “signatures” og bindum inn í harðspjalda bók. Hægt er að gera ljósmyndabók, skissubók eða annars konar bókverk með eigin myndum/verkum, svo framarlega sem það hentar þessari aðferð við saum og bókband (þetta verður nemendum skýrt eftir fyrsta kvöldið). Nemendur fullgera bókina sína undir handleiðslu Orra.
Hámarksfjöldi: eru 8 þátttakendur
Lágmarksfjöldi er 5.
Námskeiðið verður einungis haldið ef tilskilinn fjöldi þátttakenda næst. Falli námskeiðið niður verður þeim sem þegar hafa keypt sig inn á námskeiðið endurgreitt.
Verð: kr. 30.000
Allt efni og áhöld sem nota þarf verður til á staðnum og er innifalið í námskeiðsgjaldi.
Kennari á námskeiðinu er Orri Jónsson. Hann hefur reynslu af bókagerð og hefur kennt námskeið í bókasaumi meðal annars í Ljósmyndaskólanum.
Námskeiðið er keypt af heimasíðu Ljósmyndaskólans. Sjá hér.
Hægt er að fá frekari upplýsingar um námskeiðið með því að skrifa póst á ljosmyndaskolinn@ljosmyndaskolinn.is eða að hringja í síma 5620623.
Athugið: Mörg stéttarfélög taka þátt í greiðslu námskeiðsgjalda fyrir félagsmenn sína.