Við lok náms á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1 taka nemendur áfanga sem nefnist Lokaverkefni. Þar er markmiðið að samþætta alla námsþætti námsbrautarinnar og að gefa nemendum tækifæri til þess að fara í gegnum ferlið frá hugmynd til fullbúins verks með eina af hugmyndum sínum.
Nemendur velja eitt af skilaverkefnum námsársins og fá aðstoð við að útfæra það til sýningar á Uppskeruhátíð. Það var Claudia Hausfeld sem vann með nemendum í áfanganum.
Natalía Kristjánsdóttir – Óværð
Verkið endurspeglar ástandið sem ég upplifi þegar ég er í lamandi þunglyndi og er ad reyna ad komast út úr því.
Baráttan og einmanaleikinn er innra með mér.
Verkið er sett fram sem innsetning í stúdíói skólans.