Hluti af námi nemenda á Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1 við Ljósmyndaskólann er áfanginn Að lesa í og skapa ljós. Þar er unnið með eitt meginverkfæri ljósmyndarans ljósið. Nemendur læra þar að lesa í ljós og að beita því við myndatökur, að nota mismunandi ljósgjafa og blanda saman ólíkum ljósgjöfum.
Áfanginn er í fjórum hlutum og er kenndur af tveimur kennurum auk gestafyrirlesara.
Það er í síðasta hluta áfangans sem nemendur vinna undir handleiðslu ljósmyndara að þessu samstarfsverkefni með fataverkefni Rauða krossins.
Að þessu sinni var Yael BC. leiðbeinandi nemenda í þessum hluta áfangans.
Verkefnið er hópaverkefni og felst í því að nota fatnað frá verslunum Rauða krossins í myndatökum, búa til áhugaverðar myndir sem vekja athygli á verkefninu og inntaki þess. Myndirnar eru í framhaldi notaðar á vegum Rauða krossins til að vekja athygli á verkefninu.
Með fataverkefni Rauða krossins er verið að gefa fötum nýtt líf, endurnýta, sporna við sóun og með því að stemma stigu við hnattrænni hlýnun.
Öll innkoma af sölu á notuðum fatnaði í verslunum Rauða krossins fer til góðgerðarmála eða hjálparstarfs á vegum Rauða krossins.
Þær Sarah, Elín, Sandra og Svala nefndu verkefnið Veðrið er alltaf gott fyrir þann sem er rétt klæddur.
Myndirnar og texta sem þær létu fylgja má sjá hér að neðan.



Markmiðið með verkefninu var að endurspegla hið innra barn sem býr innra með hverjum og einum. Við lögðum áherslu á að túlka það í gegnum umhverfið og hvernig það er skynjað, með áherslu á það hlutverk sem veðrið spilar. Bernskunni fylgir nefninlega oft ákveðið hugarfar gagnvart veðrinu; að það skipti ekki máli hvernig veðrið er svo lengi sem að maður er rétt klæddur.
Bernskunni fylgir einnig oft tilhneiging til þess að gleyma sér í núinu og leyfa ímyndunaraflinu að taka yfir í leik og gleði.
Það var okkur mikilvægt að sameina þessa þætti og birtist það í litríkum fötum, skærum litum, ró og leik. Með verkefninu vildum við kanna tenginguna við okkar innra barn og hvernig hún birtist á mismunandi vegu.
Gott er að allir geti leikið sér áhyggjulaus og vel klædd í öllu því mismunandi veðri sem er staðreynd á Íslandi.
Með því að versla við fatabúðir Rauða kossins er hægt að styðja við það mikilvæga starf sem Rauði krossinn vinnur.
Nöfn nemenda:
Svala Rún – instagram: svalaimg
Sarah Lú – instagram: weaving.time
Elín Laxdal – instagram: elinlaxdal1
Sandra Dís Sigurðardóttir – instagram: sdsmyndir


/sr.