Sólarprent – Cyanotype
Kynning á sólarprenti (cyanotype) og grunnatriðum þess að nota aðferðina.
Farið er yfir nauðsynleg efni og áhöld.
Tímasetning: Námskeiðið verður kennt laugardaginn þann 26.sept. kl 12.00 – 17.00
Kennt verður í húsnæði Ljósmyndaskólans að Hólmaslóð 6, Reykjavík.
Hámarksfjöldi þátttakenda á námskeiðinu eru 7 manns.
Lágmarksfjöldi er 5.
Námskeiðið verður einungis haldið ef tilskilinn fjöldi þátttakenda næst. Falli námskeiðið niður verður þeim sem þegar hafa keypt sig inn á námskeiðið endurgreitt.
Námskeiðið hentar öllum á aldrinum 15 og uppúr.
Námskeiðsgjald er kr. 12.000.
Á námskeiðiðnu verður viðfangsefnið þetta:
Kynning á sólarprenti og grunnatriðum þess að nota aðferðina, farið er yfir nauðsynleg efni og áhöld.
Aðferðin er ein elsta aðferð til að búa til ljósmyndaprent en þar er notast við sólarljós, pappír og sérstök efni.
Þátttakendur fá aðstoð við að gera eigin sólarprent. Gert er ráð fyrir því að hver þátttakandi geti farið heim með 2-4 prent að loknu námskeiði.
Ferlið er einfalt en býður upp á tilraunir og fjölbreyta niðurstöðu.
Þátttakendur geta komið með lauf, blóm, strá, fjaðrir, blúndur eða annað sem gæti verið áhugavert að nota í prentin.
Ýmis mögulegur efniviður verður einnig á staðnum sem þáttakendur geta nýtt við myndsköpun.
Allur efniskostnaður er innifalinn í verði námskeiðs og öll tæki sem til þarf eru á staðnum.
Kennari á námskeiðinu verður Sonja Margrét Ólafsdóttir
Hægt er að fá frekari upplýsingar um námskeiðið með því að skrifa póst á ljosmyndaskolinn@ljosmyndaskolinn.is eða að hringja í síma 5620623.
Skráning á námskeiðið er hér
Athugið: Mörg stéttarfélög taka þátt í greiðslu námskeiðsgjalda fyrir félagsmenn sína.