Útskriftarsýning Ljósmyndaskólans 2020

Opnun: 10. janúar 2020
Staðsetning : Hólmaslóð 6
Sýning á útskriftarverkum nemenda af Námsbraut í skapandi ljósmyndun 2 opnaði að Hólmaslóð 6, 101 Reykjavík, þann 10. janúar 2020.

Föstudaginn þann 10. janúar 2020 opnaði útskriftarsýning Ljósmyndaskólans að Hólmaslóð 6. 

Að þessu sinni útskrifuðust 6 nemendur úr diplómanámi af Námsbraut í skapandi ljósmyndun 2.

Það voru þau Anna Margrét Árnadóttir, Gissur Guðjónsson, Hjördís Eyþórsdóttir, Hrafna Jóna Ágústsdóttir, Ívar Örn Helgason og Linda Björk Sigruðardóttir.

Viðfangsefni og aðferðir nemenda sem þau beittu í útskriftarverkefnunum spannaði breitt svið og glöggt mátti sjá að þau tókust þar á við ólík málefni út frá mismunandi forsendum, listrænni sýn og fagurfræði. 

Á veggjum sýningarsalarins má sjá verkið 12 vikur, svarthvítar ljóðrænar ljósmyndir þar sem tjáð á einlægan og tilfinningaþrunginn hátt sorgarferli eftir fósturmissi.  Einnig verkið Þúsund ára sveitaþorp; blákalda skrásetningu á hnignun sveitaþorps sem eitt sinn var blómstrandi kartöflustórveldi.  Úr íslenskum veruleika er farið yfir í The Bunny Diaries; sviðsettar senur úr sögu um konu sem dreymir um blóðuga hefnd. Manngert landslag; einhverskonar minjar um tilvitst mannsins er umfjöllunarefni í verkinu Svæði og í Put all our Treasures Together er settur fram fjársjóður mynda sem safnaðist saman á rótlausu flakki listakonunnar, brot út daglegu lífi hennar. Í verkinu Stráðu salti á mig verður áhorfandinn að vitni að samtali ljósmyndara við minningar sínar og hvernig hún reynir að takast á við sársaukafullt áfall. 

Myndir af sýningu tók Ívar Örn Helgason.

Myndir frá sýningu

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna