Útskriftarsýning Ljósmyndaskólans 2022

Opnun: 15. desember 2022
Staðsetning : Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Sýning á útskriftarverkum nemenda Ljósmyndaskólans var haldin í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, – Grófarsal. Stóð sýningin frá 16. desember 2022 til 8. janúar 2023. 

Sýning á útskriftarverkum nemenda Ljósmyndaskólans var haldin í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, – Grófarsal. Stóð sýningin frá 16. desember 2022 til 8. janúar 2023. 

Uppsetning á sýningu á útskriftarverkum nemenda markar lok náms þeirra við Ljósmyndaskólans en þau luku þar með 5 anna námi og útskifuðust með diplómu í skapandi ljósmyndun.

Kaffi, dulkóði, ísaumur og fangaklefi sem verður að myndavél, hvernig hægt er að flétta sögu úr minningum annarra, loftlagssorg, einelti, kvennaklefann og líkamstjáning var meðal umfjöllunarefna nemenda. Verkin endurspegla gróskuna í samtímaljósmyndun í dag og þá margvíslegu möguleika sem í ljósmyndamiðlinum felast.

Útskriftarnemenedur: Dagný Skúladóttir, Einar Óskar Sigurðsson, Guðný Maren Valsdóttir, Guðrún Sif Ólafsdóttir, Kristín Ásta Kristinsdóttir, Lovísa Fanney Árnadóttir, Sandra Björk Bjarnadóttir, Sóley Þorvaldsdóttir og Steinar Gíslason.

SýningarstjóriKatrín Elvarsdóttir

Myndir af sýningu tók Marinó Flóvent

Myndir frá sýningu

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna