Vinnustofan Gagnrýnin list – áfangalok.

 

Undanfarnar vikur hafa nemendur Námsbrautar í skapandi ljósmyndun 2 unnið með Jónu Hlíf Halldórsdóttur í vinnustofunni Gagnrýnin list.

Markmið áfangans var að skoða hvernig listsköpun er notuð til þess að gagnrýna eða hafa áhrif, hvernig unnt er að beita greinandi og gagnrýnni hugsun í listum. Nemendur kynntust  listamönnum sem  nota listsköpun með einhverjum hætti sem hreyfiafl í gagnrýnni umræðu og unnu á tímabilinu sem áfanginn stóð eigið ljósmyndaverk.

Umfjöllunarefni nemenda voru ólík en þeir vöktu  t.d. athygli á matarsóun og ýmiskonar annarri  sóun velmegunarþjóðfélags samtímans, líkamsímynd og börnum sem neytendum í gegnum val á leikföngum svo nokkuð sé nefnt.

Að vanda voru útfærslur ýmiskonar; verk á vegg, bókverk og innsetningar

Myndir með færslu tók Jóna Hlíf Halldórsdóttir við yfirferð á skilaverkefnum.

 

     

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna